Furðuleg ummæli höfð eftir Gunnari Helga Kristinssyni
Ég var eiginlega enn að hlæja að áramótaskaupinu frá í gærkvöld þegar ég heyrði kvöldfréttirnar í Ríkisútvarpinu klukkan 18. Þar var rætt um áramótaávarp forsetans og sagt:
Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðiprófessor, segir ómögulegt að ráða af ræðu forseta Íslands, hvort hann hyggist staðfesta lögin um Icesave eða ekki. […] Gunnar telur líklegra að forsetinn skrifi undir þó ekki sé hægt að vera viss. Skrifi hann ekki undir standi hann uppi vinalaus í hinu pólitíska landslagi á Íslandi. Stór hluti þeirra sem vilja að forsetinn neiti að staðfesta lögin eru litlir vinir hans en þeir sem treysta á að hann skrifi undir eru frekar pólitískir félagar.
Ég vissi fyrst ekki hvort ég ætti að halda áfram að hlæja – en þegar ég áttaði mig á alvöru málsins skildi ég að þetta var allt annað en fyndið. Í orðum Gunnars Helga fólst ansi alvarleg ásökun. Hann gaf í skyn að forsetinn væri í raun og veru jafn gerspilltur og grínast var með í áramótaskaupinu.
Er ekki illa komið ef talið er sjálfsagt og eðlilegt að ákvörðun forseta ráðist af því hvað honum þykir helst til vinsælda fallið? Hlýtur þjóðhöfðingi ekki að taka mið af landslögum, réttlæti og almannahag, og ef til vill líka virðingu embættisins og hefðum í stjórnsýslu, fremur en því hvar vinir hans eru staddir í einhverju pólitísku landslagi?
Hallgrímur orti um svona þankagang í sínum 27. Passíusálmi þar sem stendur:
Vei þeim dómara, er veit og sér,
víst hvað um málið réttast er,
vinnur það þó fyrir vinskap manns
að víkja af götu sannleikans.
Ég veit ekki frekar en aðrir hvað Ólafur Ragnar gerir en hvað sem það verður vona ég að annars konar ástæður stýri gerðum hans en þær sem Gunnar Helgi tilgreindi.
Ég óska lesendum gleðilegs árs og vona að þeir þurfi ekki að eyða ævinni í að borga skuldir óreiðumanna.
1. janúar 2010 kl. 23.42
Blessaður meistari Atli
Tek heilshugar undir aðfinnslur þínar. Því miður ríma vangaveltur Gunnars Helga hins vegar ágætlega við það gjörspillta pólitíska andrúmsloft sem alltof lengi hefur þrifist á Íslandi. Hverjir voru nú aftur í MR á árunum kringum 1970?
Annars hef ég enn meiri löngun til að ræða við þig um þekkingarfræði hunda, einkum blindra hunda, enda er mér fullkomin ráðgáta hvernig þeir fara að því að hugsa.
Skilaðu kærri kveðju til Hörpu og fyrirgefðu þetta alvörulitla innlegg.
Pétur, Kópaskeri